Glófaxi ehf hefur markað sér þá stefnu að bjóða gott úrval af alls konar stálhurðum jafnt eigin framleiðslu sem innfluttar gæðahurðir.

Aðalframleiðsluvara fyrirtækisins eru hinar landsþekktu Glófaxa eldvarnarhurðir sem hafa hlotið almenna viðurkenningu á markaðinum fyrir gæði og áreiðanleika. Hurðirnar hafa hlotið viðurkenningu Brunamálastofnunar ríkisins.

Um fyrirtækið
Glófaxi var stofnað í Reykjavík árið 1950 og hefur starfað í málmiðnaði æ síðan. Síðustu 30 árin hefur fyrirtækið sérhæft sig í framleiðslu og innflutningi stál og álhurða. Fyrirtækið er staðsett í Ármúla 42 Reykjavík og eru opnunartímar sem hér segir alla daga frá 8:00 til 17:15 nema föstudaga til 16:00